|
Síðast inni
Ég var síðast inni þann 23 desember
|
23.12.2008 12:01:39 / dagny
ÉG ÓSKA ÖLLUM ÆTTINGJUM OG VINUM NÆR OG FJÆR GLEÐILEGRA JÓLA OG FARSÆLDAR Á NÝJU ÁRI. HITTUMST HRESS OG KÁT Á NÝJU ÁRI.
MAÐUR ER ORÐINN SVO LATUR AÐ BLOGGA EN ÉG VIL BENDA YKKUR Á AÐ ÉG ER ORÐINN FÉSARI (KOMINN MEÐ FACEBOOKSÍÐU).
JÓLAKVEÐJA, DAGNÝ
»
02.12.2008 12:09:57 / dagny
Maður er nú alveg hættur að nenna þessu bloggi, en ákvað að skella inn smá pistli. Jólaundirbúningurinn er í hámarki. Búinn að baka 4 smákökusortir, ekki gert það síðan 17 hundruð og sjö og þar á meðal Sörur, sem ég hef aldrei gert áður. Ummmm þær eru syndsamlega góðar. Brynjar bakar alltaf lagterturnar og reikna ég með að við skellum okkur í það um helgina, hann bakar ég set kremið og sultuna. Ég á eftir að kaupa jólagjöfina hans Brynjars, annað er komið að mestu. Birgitta á svo eftir að fá jóladressið, Birgir búinn. Ég reikna með að við hjónin förum í jólaköttinn, þ.e. við fáum okkur ekki nýtt dress. Ég geri alltaf hreint á haustin í september og október, finnst það góður tími þá er enn sæmilega bjart og fullt af flugnaskít um allt, sem þarf að þrífa, en ég geymi alltaf ísskápinn og bakaraofninn þar til nær dregur jólum. Finnst það tilheyra í desember.
Börnin voru eitthvað að gera sér vonir um að setja skóinn upp í glugga í ár, en ég er búinn að stoppa það af. Ég sting frekar að þeim einhverjum smápökkum af og til, þau hættu endanlega að trúa á jólasveininn í fyrra, enda að verða fullorðið fólk.
Smá krepputal í lokin. Ekkert að gerast hjá BJ og maður er á nálum alltaf fyrir hver mánaðarmót að hann fá uppsagnarbréf eða allavega kjaraskerðingu. Hann hefur þó sloppið fram að þessu. Mun þó væntanlega þurfa að fara til Azoreyja í janúar eða febrúar, því allt er stopp hér á landi. Þá yrði hann einhverja 35 daga í burtu og svo frí í mánuð. Maður verður að láta sig hafa ýmislegt á þessum síðustu og verstu. Þetta er alveg bölvað þetta ástand, lánin hækka og hækka, og gengið þannig að það er ekki útlit fyrir að maður fari erlendis næstu mánuði og mannorð okkar íslendinga hefur beðið hnekki. Samt sitja allir sem komu okkur í þetta annaðhvort í glæsivillunum sínum út í heimi eða í stólunum sínum í Seðlabankanum og Stjórnarráðinu.
Djö....... ég vill fá góðærið aftur.
Yfir og út.
»
14.11.2008 14:39:51 / dagny
Djö...... hafi það. Hvert mannsbarn í landinu kemur til með að skulda 50 millur,ef við greiðum Icesave reikningana. Barnabarnið mitt sem kemur í heiminn í vor verður með þetta á bakinu. Drögum þessa vitleysinga út úr villunum sínum í London og Karabíska og hýðum þá á almannafæri.
»
03.11.2008 15:00:15 / dagny
Þessi tölvupóstur gengur nú milli manna. Nú vil ég fá svör. Er þetta satt? Yfirmaður áhættustýringar Kaupþings tapaði 2 milljörðum (mest tekið á láni) og allar skuldir hreinsaðar vi ðhann og mörg hundruð aðra bankastarfsmenn sem tóku lán frá 10-1000 milljónir til að kaupa hlutabréf, sumir fengu sér cruiser 100 jeppa, fjármögnuðu heimsreisur og lúxus heimili. Allar skuldir hreinsaðar upp svo þeir geti hafið störf í nýju ríkisbönkunum okkar. Rökin sem FME og ráðamenn færa fyrir þessu er að það sé ómögulegt að manna yfirmannastöður í nýju bönkunum nema þetta sé gert, því lögum samkvæmt mega gjaldþrota einstaklingar ekki starfa fyrir banka!!! Fyrir mér er þetta stríðsyfirlýsing við okkur venjulegu borgarana í þessu landi sem erum flest með lán í þessum bönkum. Ef skuldir og sukk þessara óreiðumanna eru sópaðar útaf borðinu þá vil ég að það sama gangi yfir alla!!!!!! tugþúsundir töpuðu stórum hluta af sparnaði sínum, tugþúsundir venjulegra hluthafa í bönkunum töpuðu öllu sínu.... ég gæti haldið endalaust áfram... ég hef aldrei reiðst eins mikið á ævi minni og þegar ég heyrði þetta. þetta er hámark spilingarinnar og hvet ég ykkur til að hafa samband við sem flesta og beina reiði ykkar að þingmönnum okkar. Þetta endar með ofbeldi annars. Með kveðju, "Jón Jónsson" Löggiltur fasteignasali
»
28.10.2008 14:28:25 / dagny
SÓSÍALISMI Þú átt 2 kýr. Þú gefur nágranna þínum aðra þeirra. KOMMÚNISMI Þú átt 2 kýr. Ríkið tekur þær báðar og gefur þér mjólk.
FASISMI Þú átt 2 kýr. Ríkið tekur þær báðar og selur þér mjólk. NASISMI Þú átt 2 kýr. Ríkið tekur þær báðar...og skýtur þig svo.
SKRIFRÆÐI Þú átt 2 kýr. Ríkið tekur þær báðar, skýtur aðra þeirra, mjólkar hina og hellir svo allri mjólkinni. HEFÐBUNDINN KAPITALISMI Þú átt 2 kýr. Þú selur aðra þeirra og kaupir naut. Þú stofnar kúabú og hagnast vel. Þú hagnast vel, selur kúabúið og sest í helgan stein
SÚRREALISMI Þú átt 2 gíraffa. Ríkið krefst þess að þú farir í harmonikkunám. BANDARÍSKA FYRIRTÆKI Þú átt 2 kýr. Þú selur aðra þeirra og þvingar hina til að gefa af sér mjólk á við fjórar kýr. Þú ræður svo sérfræðing til að komast að því hvers vegna hún datt niður dauð.
ÁHÆTTUFJÁRFESTINGAR ( Íslenska útrásin í hnotskurn ) Þú átt 2 kýr. Þú selur 3 þeirra til fyrirtækis á opnum markaði með veði í gervifyrirtæki mágs þíns, gengur svo frá yfirtöku með vísan í skráningu á markaði þannig að þú færð allar 4 kýrnar tilbaka og skattaívilnanir vegna einnar til viðbótar. Afurðarétturinn af kúnum 6 er færður yfir á fyrirtæki í Karíbahafinu, en leynilegur meirihlutaeigandi þess selur þér aftur réttinn að öllum 7 kúnum. Samkvæmt ársskýrslu á fyrirtækið nú 8 kýr, með eigendarétti að einni til viðbótar. Þú selur eina kú til þess að þóknast ónefndum stjórnmálamanni og átt þá níu kýr. Rétturinn að nautinu er seldur almenningi í hlutafjárútboði. FRANSKT FYRIRTÆKI Þú átt 2 kýr. Þú ferð í verkfall, skipuleggur mótmæli og tefur umferð...vegna þess að þú vilt eiga þrjár kýr.
JAPANSKT FYRIRTÆKI Þú átt 2 kýr. Þú endurhannar þær þannig að þær verða tíu sinnum minni, en framleiða tuttugu sinnum meiri mjólk. Þú markaðssetur svo nýja teiknimyndahetju, „Kúmann“, sem nær miklum vinsældum um allan heim. ÞÝSKT FYRIRTÆKI Þú átt 2 kýr. Þú endurhannar þær þannig að þær lifa í 100 ár, éta einu sinni í mánuði og mjólka sig sjálfar. ÍTALSKT FYRIRTÆKI Þú átt 2 kýr. Þú veist ekki hvar þær eru niðurkomnar. Þú ákveður að fá þér að borða.
RÚSSNESKT FYRIRTÆKI Þú átt 2 kýr. Þú telur þær og kemst að því að þú átt 5 kýr. Þú telur þær aftur og kemst að því að þú átt 42 kýr. Þú telur þær enn og aftur og kemst að því að þú átt 2 kýr. Þú hættir að telja og opnar aðra vodkaflösku. SVISSNESKT FYRIRTÆKI Þú átt 5000 kýr. Engin þeirra tilheyrir þér í raun. Þú rukkar eigendurna fyrir geymsluna.
KÍNVERSKT FYRIRTÆKI Þú átt 2 kýr. Þú ræður 300 manns til að mjólka þær. Þú segir atvinnuleysi í lágmarki og blómstrandi landbúnað. Þú handtekur fréttmanninn sem sagði frá stöðunni eins og hún er í raun og veru. INDVERSKT FYRIRTÆKI Þú átt tvær kýr. Þú tilbiður þær.
BRESKT FYRIRTÆKI Þú átt tvær kýr. Báðar eru með gin-og klaufaveiki ÁSTRALSKT FYRIRTÆKI Þú átt 2 kýr. Bissnessinn gengur vel. Þú lokar skrifstofunni og færð þér nokkra kalda til að halda upp á það.
NÝ-SJÁLENSKT FYRIRTÆKI Þú átt tvær kýr. Sú til vinstri er asskoti löguleg. ÍRASKT FYRIRTÆKI Allir virðast eiga fjölda kúa. Þú segir öllum að þú eigir enga. Enginn trúir þér svo þeir sprengja þig í tætlur og ráðast inn í landið. Þú átt enn engar kýr, en þú býrð þó amk í lýðræðisríki núna...
»
10.09.2008 11:40:15 / dagny
Jæja búin að kaupa nýja vigt og vigtaði mig að sjálfsögðu strax og svo aftur viku síðar og voola 1,8 kg. farin. Bara gaman, þó 20+ séu enn eftir. Góðir hlutir gerast hægt.
Er að fara austur í Vík í Mýrdal með hóp af Vegagerðarfólki og verðum við fram á föstudag. Ég er búinn að plana 2 skemmtilegar ferðir með hópinn og nú er bara að krossleggja putta og vonast eftir góðu veðri. Gæti orðið blautt reyndar, en ég held hann spái hægviðri.
Við familían þ.e. ég, Brynjar og tvíburarnir erum að fara á Sirkus Agora á föstudaginn þegar hann kemur á Selfoss. Það var nú sko ekki fríkeypis á það maður.....13.600 kr. kostuðu 4 miðar. Eina bótin að sirkus kemur ca á 20 ára fresti í pleisið.
Búið að vera veikindi á heimilinu, fyrst Gummi svo Bylgja, síðan Birgitta og hún tók það að sjálfsögðu með trompi eins og venjulega, þegar hún fær kvef þá fer það beint í lungun. Hún fékk semsagt lungnabólgu í 4ða eða 5ta skiptið á sinni ævi. Fórum með hana sárveika á vaktina á sunnudagskvöld og var komið í bæði lungun. Hún fékk einhver þrusu sýklalyf (3 töflur) og virka þau svona ansi vel á hana. Hún bara orðin hress og fékk að fara í skólann í morgunn. Læknirinn vildi endilega að hún færi til sérfræðings útaf þessari þrálátu lungnabólgu alltaf og er ég búinn að panta hjá barnalækni sem einnig er sérhæfður í smitsjúkdómum (held ég). Allavega var mælt með þessum. Fróðlegt að vita hvort kemur eitthvað út úr því.
Annars er bara allt í góðu. Sjáumst.
»
26.08.2008 13:56:57 / dagny
Þá er sumarfríið búið og gott betur en það, skólinn hjá krökkunum byrjaður og hversdagurinn tekið öll völd   Það er svo sem ágætt, þegar allt fer að fara í rútínu aftur eftir slæpinginn í sumar. Við tókum 4 vikur í orlof og kannski sofið 4-6 nætur heima í sumarfríinu. Við tvældumst töluvert og vorum stundum "veðurteppt" á sama stað í marga daga. Þar sem við gistum í sumar var: VÍK LAUGALAND LAUGARÁS APAVATN 2svar sinnum VARMAHLÍÐ AKUREYRI SAUÐÁ SELSKÓGUR Í SKORRADAL ÞÓRISSTAÐIR Í SVÍNADAL Held ég gleymi engum. Við ætluðum annaðhvort á Vestfirði eða Strandirnar, en það varð ekkert úr því. Svo var ég ákveðinn í að fara á Fiskidaginn á Dalvík, en það varð ekkert úr því heldur. Gerum það bara næst.  Annað svosem ekki markvert að frétta. Er að byrja á þeim Danska aftur eftir sukkkk sumarsins. Reyndar er ekki nein vigtun á Selfossi, en ég ætla að sjá um það sjálf. Leyfi ykkur að fylgjast með. Bless í bili.
»
27.06.2008 11:45:01 / dagny
Maður er bara alveg hættur að nenna þessu. Samt finnst mér alltaf voða skemmtilegt að sjá á hefðbundna bloggrúntinum, þegar einhver er búinn að setja inn nýja færslu. Svo ég skrái nú skilmerkilega hvað ég er búinn að aðhafast, þá fórum við í fyrstu útilegu sumarsins um síðustu helgi. Fórum á Fjölskylduhátið Rafiðnaðarsambandsins í boði Sigga Ásgeirs. Það var hin ágætasta útilega. Eldri dóttirin var líka með okkur, kallinn hennar alltaf svo bissý í boltanum   Yngri dóttirinn er með keppnisskap allrar fjölskyldunnar og ÆTLAÐI að sigra í veiðikeppninni um stærsta fiskinn eða mesta fjölda fiska. Hún stóð því allan daginn (pabbi hennar hjálpaði henni) við að veiða. Á land komu 4 fiskar (Bylgja átti reyndar tvo af þeim, en Birgitta eignaði sér þá þegar hún skráði þá vegna keppninar, ussssss ekki segja neinum). Kl. átta um kvöldið átti svo verðlaunaafhendinginn að fara fram. Við vorum öll að borða og nenntum ekki að fara, því við vorum alveg viss um að aðrir hefðu veitt stærra og meira. Birgitta var sko ekki sátt við það, alveg viss um að vinna, eins og alltaf þegar hún tekur þátt í einhverri keppni   svo hún hljóp ein og kom svo heim nokkru síðar með bikar og verðlaunapening að springa úr monti. Hún hafði þá fengið verðlaun fyrir flesta fiska. Eftir þetta var svo farið á tónleika með KK og brenna kl. 11. Brynjar er að vinna þessa helgina og ætla ég því bara að slappa af heima um þessa helgina, kannski bera á kofann og ditta að garðinum. Ef ég nenni fer ég kannski á jónsmessubrennu á Eyrarbakka með krakkana á laugardagskvöldið. Brynjar fór og keypti nýjan bíl handa frúnni á miðvikudaginn, MEÐ HRAÐASTILLI. Sömu týpu og sami litur nema árg. 08. Nýja bílnúmerið okkar er því MH-U37. Sakna gamla bílnúmersins PI-111 það var svo helv..... flott. Ekki meira að segja í bili, bæjó
»
10.06.2008 12:10:15 / dagny
Svo ég byrji nú, þar sem ég endaði síðast.... þá fórum við hjónin semsagt til Manchester í helgarferð. Það var nú alveg ágætt. Kom á óvart hvað breskar stúlkur eru illa klæddar á djamminu, mínipils og toppur aðal klæðnaðurinn þó hitinn færi niður í 7-8 gráður á kvöldin og svo kom mér líka á óvart hvað það var rosalegt fyllerýið. Hélt nú að íslendingar ættu metið þar, en svei mér ef Manchesterbúar eru ekki verri. Höfðum það mjög gott, löbbuðum mikið og kíktum náttla í búðir   Þegar við vorum búinn að vera heima hjá okkur í 3 daga kom stór suðurlandsskálfti eins og allir vita. Ég var í vinnunni og börnin ein heima. Ég fékk því algjört móðursýkiskast og hljóp út og heim, rétt náði að komast yfir brúna áður en hún lokaði. Börnin fóru undir borð og stóðu sig eins og hetjur. Ég náði að hringja heim, þegar skjálftinn var afstaðinn og áður en ég þaut út í bíl og skipaði þeim að hlaupa út og vera úti þar til ég kæmi. Fyrstu fréttir voru að ALLT væri brotið, en svo kom nú í ljós að aðeins einn hlutur í stofunni brotnaði. Við sluppum semsagt ótrúlega vel. Mamma og pabbi komu til okkar í Kálfhólana og héldum við til á pallinum, bílnum og síðan fellihýsinu, þar til óhætt var að fara inn aftur. Það myndaðist ansi skrítinn stemming í götunni, allir úti og fólk hellandi á kaffi og færandi nágrönnum og fólk að ræða saman í smá hópum. Brynjar var að vinna í Reykjavík og lagði af stað heim fljótlega eftir skjálftann. Fyrst fór hann Þrengslin og ætlaði yfir Óseyrarbrú, þá var henni lokað, svo hann varð að fara Ölfusið og þá leið heim. Það er alveg ótrúlegt hvað hús og innbú fór misjafnlega hjá fólki. Það slapp mjög vel allt í kringum okkur, enda húsin byggði á mýrarfeni og öll á einhversskonar púðum. Fórum á föstudaginn í bústað Vegagerðarinnar við Meðalfellsvatn og komum heim í gær (mánudag), þá tóku mamma og pabbi við bústaðnum og verða þar út vikuna. Það var mikið veitt, bóndinn og börnin héldu til á bátnum út á vatninu, en ég lá í leti og las eða fór í göngutúra. Bylgja var hjá okkur um helgina og Gummi kom svo á laugardagskvöldinu. Ég held að það hafi veiðst hátt í 30 fiskar, flestir puttar, en Birgir Þór fékk þó einn 2ja punda. Hann átti því stærðarmetið, en Birgitta fjöldametið. Um næstu helgi er svo útskriftin hennar Bylgju þ.e.a.s á laugardaginn og veisla í Hliðskjálf um kvöldið. Vonandi skelfur ekki undir okkur þá  Gummi ætlar að útbúa einhverja dýrindis rétti. Þetta verður bara gaman. Verst er að ég er í algjörum vandræðum með barnapíu, en vonandi leysist það í vikunni. Læt þetta duga, er orðin ansi löt að blogga
»
21.05.2008 14:20:48 / dagny
1. Við Brynjar eigum 25 ára brúðkaupsafmæli í dag  2. Við Brynjar ætlum á Queen tónleika (Fjölbrautarskólakórinn og Magni) í kvöld. Bara gaman  3. Við Brynjar ætlum í síðbúna brauðkaupsferð á föstudaginn og komum heim aftur á mánudagskvöld. Leyndó hvert við förum. Brynjar má ekki vita. Ok segi ykkur smá, það er allavega út fyrir landsteinana  4. Ekki minn dagur í gær. Var næstum því búinn að dúndra aftan á Erlu svilkonu á Austurveginum, var að flýta mér í strípur og allt í einu stoppar bíllinn fyrir framan hana á gangbraut og ég með hugann við að flýta mér og þurfti að negla niður. Munaði nokkrum sentimetrum. 5. Ekki minn dagur í gær. Var tekinn fyrir of hraðann akstur á Hellisheiði. Bíllinn mældist á 123 km. hraða og 37.500 kr. í sekt. Næst fæ ég mér bíl með Cruse control (Hraðastilli). Bless í bili........ PS. Mér reiknast til að ég sé að fara í 5tu utanlandsferðina á einu ári. 1. Mallorca í maí 2007. 2. Köben í nóv. 2007. 3. Kanarý í jan. 2008. 4. Denver USA í apríl 2008. 5. Brúðkaupsferð til xxxxxxxxxx í maí 2008. Bæ aftur.
»
29.04.2008 09:27:19 / dagny
Þá hefur maður stigið á Bandaríska grund. Soldið sérstakt sumt. Fór í lest í fyrsta skipti. Spurð um passa á barnum í fyrsta skipti  . Merkilegt alveg að vera spurður um passa, manneskja á fimmtugsaldri, ef maður fékk sér bjór eða léttvín. Kurteisin og þjónustulundin var soldið yfirþyrmandi til að byrja með, svo var maður orðin alveg yfirmáta kurteis sjálfur í restina. Maður fór ekki inn í búð eða veitingastað eða lyftu, nema að vera spurður "Hæææææææææ how are you". Þegar fólk vissi að maður var frá Íslandi spurði það alveg út í eitt. Sumir vissu ýmislegt, aðrir ekki neitt. Bestur var þó þjónninn á hótelinu sem við vorum á, þegar hann sagði við mig að eina sem hann vissi um Ísland væri að við byggjum til aldeilis frábær vín úr frosnum vínberjum......ha ha ha. Ég var svo orðlaus   að ég jánkaði bara og svo hlógum við þvílíkt þegar maðurinn var farinn. Hann semsagt trúði þessu og trúir enn, þar sem við leiðréttum hann ekki    Ráðstefnan var fín og ráðstefnuhöllinn svo stór að það tók mann margar mínútur að fara á milli sala. Það tók mann svona tíu mín. að komast upp í matsalinn, þvílík var stærðin og þar borðuðu 5000 manns. Maður fékk svona lunchbox með samloku, ávöxtum og allskonar dóti, og gosdós með og þetta gekk alveg ótrúlega fljótt fyrir sig miðað við fjöldann. Á morgnanna milli 8 og 9 áður en maður mætti á fyrsta fyrirlestur fórum við á beyglustað og fengum okkur beyglu með rjómaosti, ávaxtasafa og kaffi, ummm sakna beyglanna. (Morgunmatur ALDREI innifalin á hótelum í USA) Svo var þetta lunchbox í hádeginu, um kaffileytið var kaffi og kökur á göngunum. Suma dagana vorum við allan daginn, lengst til hálfsex, en oftast til svona fjögur, nema sunnudagurinn var frjáls fyrir utan að við mættum til að skrá okkur, fá bakpoka og passa. Það var ekki hægt að fá inngöngu nema vera með passann um hálsinn. Ráðsstefnunni lauk svo kl. 13 á fimmtudeginum og því hafði maður restina af þeim degi frjálsan. Sunnudagurinn og hluti fimmtudags var notaður í að versla í mollinu Cherry Creek. Fínt að versla þar. Ekki svo stórt, svona svipað og Kringlan og allar þessar helstu Amerísku verslanir/keðjur. Keypti eitthvað smá handa öllum, fatnað og skó. Flugið var ansi langt og erfitt, þegar ég kom heim á laugardagsmorgni eftir nærri sólarhringsferð ef með talinn er tímamismunur, var ég með svo mikinn bjúg að ég komst varla í nokkra skó, enda fékk ég nett áfall þegar ég steig á vigtina + 4 kg. Enn sem betur fer pissaði ég flestum þessum kílóum á nokkrum dögum. Fór í vigtun í gær, enda byrjuð aftur á fullu á þeim danska, eftir sukkið í Ameríku og afmælishelgi hjá börnum, þar sem mikið var borðað og var vigtin + 300 g.   en ég vissi það svo sem. Nú er bara að setja trukk í þetta og ná 10 kg. markinu í næstu vigtun, en mig vantar 1,8 kg. í það. Dállítil bjartsýni í gangi, en mér hefur tekist það áður. Það verður námskeið/vigtun fram í byrjun júní og þá væri nú gott að vera búinn með 15 kg. STEFNI Á ÞAÐ   Jæja læt þetta duga í bili, enda búinn að vera að skrifa þennan pistil í þremur hollum, byrjaði í gær. Bless
»
08.04.2008 15:30:20 / dagny
Fór í vigtun í gær, fóru 1,2 kg. síðustu viku og því 8,5 farin í heildina. Jibbbí. 5 dagar í brottför, kvíður bæði fyrir og hlakka til. Þetta er svo svakalega langt ferðalag, förum í lofið kl. 16.30 og lendum í Denver 6.30 að íslenskum tíma en þá er hún 23.30 að kveldi í Denver. 7 tíma munur og því bannað að hringja í mig fyrr en seinnipartinn  meðan ég er stödd þarna úti. Kem aftur að morgni 19. apríl. Þetta er víst alveg meiriháttar fjölmenn ráðstefna um 5000 manns frá öllum heimshornum og 550 fyrirlestrar. Ég er að búa mér til "My personal agenda" þar sem maður fer inn á heimasíðu þeirra og hakar við þá fyrirlestra sem maður hefur áhuga á eða nýtast manni á einhvern hátt og síðan prentar maður út listann. Maður getur verið á fyrirlestri alveg frá 8 á morgnanna til 6 á daginn. Ég reikna nú samt ekki með því að maður geri það alla daga, en svona til 3 eða 4. Svo eru líka einhverjar uppákomur á kvöldin og það er búið að plana að fara á eina slíka á miðvikudagskvöldinu, en það er aðal partýið "The Rocky Mountains Colorado party" Svo kíkir maður í búðir náttla eitthvað. Það er innifalin matur á ráðstefnunni og því þarf maður bara að kaupa sér mat á kvöldin. Mér skilst að það séu nú aðallega samlokur og þess háttar, sem ég má EKKI borða, (bara 2 sn. á dag, 60 grömm) og því reikna ég nú alveg með að maður þyngist eitthvað þarna úti, en maður tekur bara vel á því þegar maður kemur heim. Það heldur áfram að vera vigtun til byrjun júní. Er búinn að vera í Pilates nú í 3 vikur eða svo og nú er kennarinn að hætta en hún er jafnvel búinn að redda öðrum kennara. Ég ætla rétt að vona það. mér finnst ég hafa svo rosalega gott af þessu og vona að þetta verði áfram eitthvað fram á vorið. Svo hef ég verið í nuddi núna 2svar í viku. Vantar samt rosalega rassa og læranudd    kann ekki við að biðja um það, en hún sleppir þeim líkamshlutum. Verð að láta krakkana þramma ofan á rassinum á mér, þau hafa stundum gert það. Jæja ekki meira blogg í bili. Læt heyra í mér þegar ég kem að utan.
»
02.04.2008 11:42:11 / dagny
Jæja það var loksins vigtun á mánudaginn eftir smá hlé og hafði ég misst 1,9 kg. sem er bara mjög gott miðað við að það voru páskar og sonna. Allavega var Kristín mjög ánægð, sagði að í bænum hefðu verið þvílíkt af plústölum hjá fólki, en við sem mættum höfðum allar misst eitthvað fyrir utan eina sem bætti á sig þremur kg. Úbbs hefði ekki viljað vera í hennar sporum. Það verður áframhaldandi námskeið/vigtun á Selfossi til 2. júní svo maður heldur bara áfram að vera duglegur. Verst hvað he........ bumban á manni minnkar lítið, en það breytist nú vonandi þegar líða tekur á vorið.
Það styttist í Ameríkuferðina hjá mér. Verst hvað ég er undirlögð í verkjum og vöðvabólgu þessa dagana. Fór reyndar í nudd í gær og ætla aftur á föstudag og vonandi allavega tvisvar í næstu viku. Verð að vera orðin sæmilega góð áður en ég fer, því það verður svoddan at á manni þarna úti.
Verð að hætta núna
»
26.03.2008 15:41:42 / dagny
 Það eru ekki nema 18 dagar í Ameríkuferðina hjá mér. Mikið rosalega líður tíminn alltaf hratt. Ég þarf að gera svo margt áður en ég fer. Börnin þurfa að fara í klippingu, því það er ferming hjá Erlu og Hafsteini meðan ég er úti. Þarf að hafa klár sparifötin þeirra (og kallsins reyndar líka). Ég þarf sjálf að fara í strípur, litun og fóthreinsun. Það eru svo skelfilegar á mér lappirnar út af þessu helv.... exemi og ég veit að það verður mikið labbað þarna úti, því þarf ég að láta laga þetta eitthvað, áður en ég fer. Einnig þarf að hafa allt nýþvegið, því ekki verður sett í þvottavél í heila viku    . Daginn eftir að ég kem heim fer ég síðan í brúðkaup upp á Skaga, en Helgi Þór (Heiðarsson) og Fríða eru að fara að gifta sig. Ég steig á vigtina á þriðjudagsmorgunn og sá ekki betur en ég hefði misst 1 kíló yfir páskana. Ég bara trúi því varla, en þetta sagði vigtin. Ég var reyndar andsk.... dugleg, því eins og ég var búinn að segja áður, þá var Brynjar að vinna og því "auðveldara" að halda sér á mottunni. Fékk mér nú samt smá súkkulaði smakk af páskaeggjum barnanna og borðaði minna en oft áður í hlaðborðinu hjá mömmu á páskadag. Var samt það södd að ég sleppti kvöldmatnum, fékk mér bara ávexti og ddv ís um kvöldið og börnin fengu GRJÓNAGRAUT. Já þið sáðuð rétt...........grjónagraut á páskadagskvöld, það er ég viss um að rónarnir í Reykjavík hafa fengið skárra en það, nei segi nú svona. Börnunum þykir hann mjög góður og voru alveg sátt. Var bara með páskasteikina á annan. Já svona er nú það.
»
18.03.2008 12:05:39 / dagny
Er búinn að sitja með sveittann skallann að gera matseðil fyrir vikuna. Er að reyna að hafa hollann en samt spari mat vegna páskadaganna. Brynjar verður að vinna alla páskana og þá get ég frekar leyft mér að vera með sósur úr fjörmjólk í stað rjóma, kjúklingabringur og þess háttar (Brynjar meira fyrir rautt kjöt). Svo vonandi verður einhver léttingur yfir páskana. Ætla að mæta með ddv ís og ddv berjabombu í kaffið hjá mömmu á páskadag og reyna að láta eiga sig hnallþórunar hennar mömmu. Allavega ætla ég að reyna að halda mig við rétt mataræði alla daga, nema á páskadag þá leyfi ég mér smá svindl.
Það er frí frá vigtun fram yfir páska eða til 31. mars. Ég vigtaði mig á vigtina heima síðastliðinn þriðjudagsmorgunn og svo aftur nú í morgunn (akkúrat vika) og þá voru farin 600 grömm. Svo það eru 6 kg. farin í heildina. Ég er svo hryllilega óþolinmóð vill helst losna við þetta allt saman á einum degi, en er að reyna að hugsa rökrétt og gefa mér heilt ár. Síðan þegar markmiðinu er náð þá er að halda sig í kjörþyngd, það verður líka hellingsmál, en guð minn almáttugur ég vona að ég eigi aldrei eftir að missa svona gjörsamlega tökin aftur. Því miður var það þannig hjá mér í marga mánuði eða ár að ég borðaði poppkorn og sælgæti á hverju einasta kvöldi. Ég skal aldrei falla í þá gryfju aftur. Það er markmiðið mitt og skal takast.
Sumrin og utanlandsferðir eru reyndar soldið hættuleg hvað mat og drykk varðar, en ég skal reyna að eins og ég get að stilla mig.
Þá er fréttalestrinum lokið og gleðilega páska.
»
Síður: 1 2 3 ... 8
|
Heimsóknir
Í dag: 14 Alls: 38995
|